Fagfjárfestasjóðurinn ÍSH: Árshlutareikningur 30. júní 2021
Fagfjárfestasjóðurinn ÍSH gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. á árinu 2014. Meðfylgjandi er árshlutareikningur 30. júní 2021 fyrir fagfjárfestasjóðinn ÍSH.
Tap sjóðsins á fyrri árshelmingi 2021 nam 557 þús.kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
Hrein eign sjóðsins var neikvæð um 1.840 þús.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Við könnun þeirra kom ekkert fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Kviku eignastýringar hf. í síma 522-0010.
Attachment