Advertisement
UK markets close in 44 minutes
  • FTSE 100

    8,050.18
    +5.37 (+0.07%)
     
  • FTSE 250

    19,748.16
    -51.56 (-0.26%)
     
  • AIM

    755.00
    +0.13 (+0.02%)
     
  • GBP/EUR

    1.1631
    +0.0003 (+0.03%)
     
  • GBP/USD

    1.2432
    -0.0020 (-0.16%)
     
  • Bitcoin GBP

    52,172.89
    -1,442.57 (-2.69%)
     
  • CMC Crypto 200

    1,414.27
    -9.83 (-0.69%)
     
  • S&P 500

    5,068.67
    -1.88 (-0.04%)
     
  • DOW

    38,426.05
    -77.64 (-0.20%)
     
  • CRUDE OIL

    83.39
    +0.03 (+0.04%)
     
  • GOLD FUTURES

    2,338.60
    -3.50 (-0.15%)
     
  • NIKKEI 225

    38,460.08
    +907.92 (+2.42%)
     
  • HANG SENG

    17,201.27
    +372.34 (+2.21%)
     
  • DAX

    18,108.15
    -29.50 (-0.16%)
     
  • CAC 40

    8,100.18
    -5.60 (-0.07%)
     

Festi hf.: Afkoma á 3. ársfjórðungi 2020

Hagnaður 1.162 milljónir króna á 3. ársfjórðungi 2020

Helstu niðurstöður

  • Framlegð af vöru- og þjónustusölu í 3F 2020 voru 5.831 m.kr. samanborið við 5.644 m.kr. í 3F 2019, sem samsvarar 3,3% aukningu milli ára.

  • EBITDA nam 2.586 m.kr. á 3F 2020 samanborið við 2.617 m.kr. 3F 2019, sem jafngildir 1,2% lækkun.

  • Lakari niðurstöðu má rekja til áhrifa COVID-19 samkomutakmarkana sem komu til í ágúst 2020.

  • Framlegð af vörusölu var 24,8% á 3F 2020 en framlegðin var 23,4% á 3F 2019

  • Eigið fé í lok 3F 2020 var 29.682 m.kr. og eiginfjárhlutfall 34,8% samanborið við 35,3% í lok árs 2019.

  • Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindingar var 28.109 m.kr. í lok 3F 2020 samanborið við 28.011 m.kr. í lok 2019.

  • EBITDA spá fyrir árið 2020 er nú uppfærð og er á bilinu 7.200 – 7.500 m.kr. Áfram er óvissa um áhrif COVID-19 samkomutakmarkana á reksturinn.

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi:
„Reksturinn gekk vel á 3ja ársfjórðungi og er efst í mínum huga þakklæti til þess frábæra starfsfólks sem stendur vaktina með okkur á hverjum degi á þessum erfiðu tímum, í miðjum COVID-19 faraldrinum. Ég er ótrúlega stoltur af þessum öfluga hópi.

ADVERTISEMENT

Rekstur ELKO var áfram umfram væntingar þrátt fyrir að verslun ELKO í Leifsstöð væri með ríflega 70% tekjusamdrátt milli ára. Mikill vöxtur er í verslunum ELKO á höfuðborgarsvæðinu og sérstaklega í netverslun ELKO sem sýnir gríðarlega aukningu milli ára. Unnið hefur verið að nýrri verslun ELKO á Akureyri sem fyrirhugað er að muni opna seinnipart þessa mánaðar.

Rekstur N1 gekk mjög vel í sumar þrátt fyrir fækkun ferðamanna og minni umsvif í sjávarútvegi. Er það ekki síst að þakka yfirburða stöðu dreifikerfis félagsins. Félagið fann þó mikið fyrir samkomutakmörkunum stjórnvalda er hófust að nýju í byrjun ágúst sl.

Krónan hefur áfram sýnt mikla aukningu milli ára en félagið opnaði í fjórðungnum nýja verslun á Hallveigarstíg í Reykjavík. Þá er Snjallverslun Krónunnar fengið gríðarlega góðar viðtökur viðskiptavina okkar. Tvær nýjar Krónuverlsanir opna á 4 ársfjórðungi, í Norðurhellu Hafnarfirði og Austurveri í Reykjavík.

Horfur í rekstri Festi samstæðunnar eru góðar og félagið er vel í stakk búið til að takast á við verkefnin framundan. Við munum áfram leggja mikla áherslu á gæði og öryggismál til að tryggja öryggi starfsmanna og okkar viðskiptavina.“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi.

Nánari upplýsingar er að finna í afkomutilkynningu í viðhengi.

Attachments