Advertisement
UK markets open in 1 hour 42 minutes
  • NIKKEI 225

    37,695.81
    -764.27 (-1.99%)
     
  • HANG SENG

    17,251.69
    +50.42 (+0.29%)
     
  • CRUDE OIL

    82.95
    +0.14 (+0.17%)
     
  • GOLD FUTURES

    2,328.90
    -9.50 (-0.41%)
     
  • DOW

    38,460.92
    -42.77 (-0.11%)
     
  • Bitcoin GBP

    51,466.62
    -2,222.26 (-4.14%)
     
  • CMC Crypto 200

    1,390.48
    -33.62 (-2.36%)
     
  • NASDAQ Composite

    15,712.75
    +16.11 (+0.10%)
     
  • UK FTSE All Share

    4,374.06
    -4.69 (-0.11%)
     

VÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Vátryggingafélags Íslands hf. þann 19. mars 2021 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 12 mánuðum allt að 10% af hlutafé félagsins. Stjórn VÍS hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess. Félaginu barst í dag samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands („Fjármálaeftirlitið“) og munu endurkaup hefjast þegar í stað.

Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir er 17.000.000 hlutir að nafnvirði, en það jafngildir um 0,89% af útgefnu hlutafé félagsins, sem er nú kr. 1.894.462.192 að nafnvirði. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en kr. 250.000.000 að markaðsvirði. Heimildin gildir í tvo mánuði frá og með samþykki Fjármálaeftirlitsins.

Endurkaupin verða framkvæmd af Íslenskum fjárfestum hf. sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 2.000.000 hlutir að nafnverði, sem er innan við fjórðungur af meðalveltu síðustu fjögurra vikna. Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Fyrir á Vátryggingafélag Íslands hf. alls 16.000.000 eigin hluti, eða 0,84% af heildarhlutafé félagsins.


Nánari upplýsingar:

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 og með tölvupósti erlat@vis.is