Advertisement
UK markets close in 4 hours 9 minutes
  • FTSE 100

    8,087.23
    +46.85 (+0.58%)
     
  • FTSE 250

    19,697.75
    -21.62 (-0.11%)
     
  • AIM

    754.79
    +0.10 (+0.01%)
     
  • GBP/EUR

    1.1663
    +0.0019 (+0.16%)
     
  • GBP/USD

    1.2512
    +0.0049 (+0.39%)
     
  • Bitcoin GBP

    50,960.64
    -2,139.86 (-4.03%)
     
  • CMC Crypto 200

    1,349.56
    -33.01 (-2.39%)
     
  • S&P 500

    5,071.63
    +1.08 (+0.02%)
     
  • DOW

    38,460.92
    -42.77 (-0.11%)
     
  • CRUDE OIL

    82.93
    +0.12 (+0.14%)
     
  • GOLD FUTURES

    2,341.40
    +3.00 (+0.13%)
     
  • NIKKEI 225

    37,628.48
    -831.60 (-2.16%)
     
  • HANG SENG

    17,284.54
    +83.27 (+0.48%)
     
  • DAX

    17,953.46
    -135.24 (-0.75%)
     
  • CAC 40

    8,019.07
    -72.79 (-0.90%)
     

VÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Vátryggingafélags Íslands hf. þann 19. mars 2021 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 12 mánuðum allt að 10% af hlutafé félagsins.

Stjórn VÍS hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess.

Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir er 28.112.939 hlutir að nafnvirði, en það jafngildir um 1,48% af útgefnu hlutafé félagsins, sem er nú kr. 1.894.462.192 að nafnvirði. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en kr. 500.000.000 að markaðsvirði. Heimildin gildir í tvo mánuði frá og með þeim degi að samþykki Fjármálaeftirlitsins fyrir endurkaupunum fæst.

Endurkaupin verða framkvæmd af Íslenskum fjárfestum hf. sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

ADVERTISEMENT

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 2.000.000 hlutir að nafnverði, sem er innan við fjórðungur af meðalveltu síðustu fjögurra vikna. Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.

Fyrir á Vátryggingafélag Íslands hf. 31.349.253 eigin hluti.

Endurkaup vátryggingafélaga í þeim tilgangi að lækka hlutafé eru háð fyrirfram samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Tilkynnt verður sérstaklega þegar slíkt samþykki hefur verið veitt og endurkaup munu hefjast.